Fögnum sumri með óhefðbundinni leið.
Hittumst við Þórustaðanámu kl. 9.00
Þaðan röltum við austur með fjallinu og förum upp á óhefðbundnum stað. Það er nokkuð bratt en ágætt undirlag. Grasbrekka og mosagróið langleiðina upp. Smá að þræða sig í gegnum kletta en ekki lausar skriður. Þegar upp er komið förum við með brúninni til baka og tökum stefnuna að vörðunni og förum niður algengu gönguleiðina.

Vegalengd í þessari göngu er um 7 – 8 km og heildar hækkun um 450 m. Áætlaður göngutími 3 – 4 tímar
Göngustjóri Sævar Gunnarsson
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju ferðanefndin
Með göngukveðju ferðanefndin