Aðalfundur félagsins var haldin miðvikudaginn 18. mars síðastliðinn.
Fundurinn hófst með hressilegu erindi Gunnars Geirs Markússonar næringarfræðings.
Björg Halldórsdóttir formaður fór yfir starf síðasta árs, sem hefur verið mjög öflugt og fjölbreytt. Fjárhagur félagsins er góður. Við fengum hrós frá Ferðafélagi Íslands fyrir ferðadagskrána og starfsemina okkar, sem þeim þótti einstaklega metnaðarfull, þar sem nær allt starf félagsins er unnið í sjálfboðavinnu.
Björg Halldórsdóttir var endurkjörin formaður. Aðrir í stjórn eru: Olgeir Jónsson, Halla Eygló Sveinsdóttir, Sigrún Helga Valdimarsdóttir og Guðjón Pétur Arnarson.
Varamenn: Guðmundur Gunnar Guðnason og Magnús Baldursson.
Starfsemi félagsins þetta árið verður með hefðbundnum hætti, dagsferðir sem eru skipulagðar og stjórnað af félagsmönnum samkvæmt ferðaskipulagi ársins. Allir eru velkomnir í dagsferðir félagsins. Hér má sjá yfirlit yfir ferðir ársins 2026: Dagskrá 2026 – Ferðafélag Árnesinga
Auk þess er fyrirhuguð ferð fyrir félagsmenn til Austurríkis í haust.