Vegna aðstæðna höfum við ákveðið að fara aðra göngu en upphaflega var á dagskrá. Það er styttri keyrsla og fólk er kannski ekki mikið að sameinast í bíla. Farið verður á Sköflung og einhverjar slaufur það í kring eftir veðri. Sköflungur er hryggur sem gengur í norðurátt í framhaldi af Henglinum. Upphaf göngu er af Nesjavallavegi skammt ofan við Dyradal.
Ef einhverjir eru sem vantar far er best að vera búin að tryggja sér það fyrir fram.
Við verðum að vanda okkur vel í svona ferð. Halda bili og virða allar þær reglur sem okkur ber.
Með göngukveðju ferðanefndin